Í Gboard finnurðu allt sem þú kannt að meta við Google lyklaborð – hraða og áreiðanleika, bendingainnslátt, raddinnslátt, handskrift og fleira
Bendingainnsláttur — Skrifaðu hraðar með því að renna fingrinum frá einum staf til annars
Raddinnsláttur — Lestu texta upp til að skrifa auðveldlega á ferðinni
Handskrift* — Skrifaðu með tengiskrift eða prentstöfum
Emoji-leit* — Finndu rétt emoji hraðar
GIF* — Leitaðu að GIF-myndum til að deila réttu viðbrögðunum.
Innsláttur á mörgum tungumálum — Ekki þarf lengur að skipta handvirkt á milli tungumála. Gboard leiðréttir sjálfkrafa og kemur með tillögur á öllum virkum tungumálum.
Google Translate — Þýddu um leið og þú slærð inn á lyklaborðið
* Ekki stutt í Android Go tækjum
Hundruð tungumálaafbrigða, þar á meðal:
afríkanska, amharíska, arabíska, aserska, assamska, bengalska, bhojpuri, búrmíska, bæverska, chhattisgarhi, chittagónska, deccan, enska, filippseyska, franska, gríska, gújaratí, hása, hindí, hollenska, igbo, indónesíska, ítalska, japanska, javíska, jorúba, kambódíska, kannada, kínverska (mandarín, kantónska og fleiri), kóreska, kúrdíska, magahi, maithili, malajalam, malajíska, maratí, nepalska, norðursótó, odía, pashto, persneska, portúgalska, pólska, púnjabíska, rúmenska, rússneska, saraiki, sebúanó, sindí, sinhalíska, sómalíska, spænska, suðursótó, súlú, súndíska, svahílí, taílenska, tamílska, telúgú, tékkneska, tswana, tyrkneska, úkraínska, úrdú, úsbekíska, víetnamska, xhosa, þýska og mörg fleiri! Kíktu á https://goo.gl/fMQ85U til að sjá lista yfir öll studd tungumál
Góð ráð:
• Bendingastjórnun bendils: Renndu fingrinum yfir bilslána til að hreyfa bendilinn
• Eyða með bendingu: Renndu til vinstri frá Delete-takkanum til að stroka út mörg orð á fljótlegan hátt
• Gera tölustafaröðina ávallt sýnilega (kveiktu á þessu í Stillingar → Kjörstillingar → Tölustafaröð)
• Ábendingar fyrir tákn: Birtu ábendingar fyrir tákn á lyklunum með því að halda þeim inni (kveiktu á þessu í Stillingar → Kjörstillingar → Halda inni til að sjá tákn)
• Einhent stilling: Á símum með stóran skjá er hægt að festa lyklaborðið til hægri eða vinstri á skjánum
• Þemu: Veldu þema með eða án ramma í kringum lykla