Hripaðu á fljótlegan hátt niður það sem þér er efst í huga hverju sinni og fáðu áminningu á réttum stað eða tíma. Lestu inn glósu á ferðinni og fáðu sjálfvirka textauppskrift. Taktu mynd af veggspjaldi, kvittun eða skjali og flokkaðu efnið eða finndu það á einfaldan hátt síðar með leitinni. Með Google Keep er einfalt að punkta hjá sér hugmynd eða búa til lista, og deila svo með öðrum.
Fangaðu það sem þér liggur á hjarta
• Bættu glósum, listum og myndum við Google Keep. Í tímaþröng? Taktu upp raddglósu og Keep skrifar hana upp fyrir þig til að þú finnir hana síðar.
• Nýttu þér græjur í símanum og spjaldtölvunni og bættu skífum og græjum við Wear OS-tækið til að hripa hugmyndir þínar niður í fljótheitum.
Deildu hugmyndum með fjölskyldu og vinum
• Það er einfalt mál að skipuleggja óvænta afmælisveislu með því að deila Keep-glósum með öðrum og vinna í þeim saman í rauntíma.
Vertu fljótari að finna það sem þig vantar
• Litamerktu glósur og settu í flokka til að skipuleggja þær á fljótlegan hátt. Einföld leit skilar þér því sem þú þarft að finna.
• Festu glósur á heimaskjá símans eða spjaldtölvunnar með græjum og bættu við flýtileiðum í glósurnar þínar með skífum í Wear OS-tæki.
Ávallt innan seilingar
• Keep virkar í símanum, spjaldtölvunni, tölvunni og Wear OS-tækinu. Allt sem þú bætir við er samstillt á milli allra tækja og þannig er efnið þitt ávallt við höndina.
Rétta glósan á réttum tíma
• Þarftu að muna eftir að kaupa inn? Stilltu staðsetningaráminningu sem birtir innkaupalistann þinn þegar þú kemur í búðina.
Í boði hvar sem þú ert
• Prófaðu Google Keep á vefnum á http://keep.google.com og sæktu það í vefverslun Chrome á http://g.co/keepinchrome.